Þjóðfundur um menntamál
Laugardaginn 13. febrúar stóð hópur áhugafólks um menntamál að Þjóðfundi um menntamál í húsnæði menntavísindasviðs, Háskóla Íslands. Á fundinn mætti á þriðja hundrað manns til að ræða um menntun barna á aldrinum 2- 16 ára. Fundarmenn skiptust í tvo meginhópa. Annarsvegar foreldra og hins vegar sérfræðinga um menntamál, grunnskólakennara, leikskólakennara, fræðamenn og fleiri
Fundurinn er afsprengi Þjóðfundar 2009, hann byggir á þeim aðferðum sem þar voru þróaðar en jafnframt voru þau vinnubrögð þróuð til að ná fram samstöðu um aðgerðir. Fólkið sem stóð að Þjóðfundi um menntamál 2010 hafði margt lagt sitt að mörkum við undirbúning og framkvæmd Þjóðfundar 2009.
Eftir Þjóðfund 2009 var mörgum boltum hent upp í loft, við sem stóðum að Þjóðfundi um menntamál gripum einn þessara bolta.
Á þjóðfundi um menntamál var byrjað á því að skilgreina þau gildi sem fundargestir telja mikilvægust við menntun barna. Þau gildi sem skoruðu hæst voru Virðing, gleði og sköpun.
Þegar hugmyndir gesta um þemu voru flokkuð komu fram sex þemu, sem ekki eru flokkuð mikilvægisröð,
Að lokum komu fram tæplega 50 beinar tillögur að aðgerðum í menntamálum, aðgerðir sem allar verða birtar á vef Menntafundar nú í vikunni (á menntafundur.ning.com). Tillögurnar verða jafnframt kynntar á Menntaþingi, menntamálaráðherra þann 5. mars næstkomandi.
ÞEMU ÞJÓÐFUNDAR UM MENNTAMÁL 2010
Nú hafa Þemu Þjóðfundar um menntamál verið sett fram, fundargestir eru nú að vinna í því að raða hugmyndum sínum á þemun, næsta skref er að vinna að hugmyndum að aðgerðum sem falla undir þemun. Að degi loknum verða til minnst 30 tillögur að beinum aðgerðum í menntamálum.
ÞEMU:
Kennaramenntun
Skóli og samfélag
Skapandi skólastarf
Skólaþróun
Samfélagsfærni
Kennsluhættir og námsefni
GILDI ÞJÓÐFUNDAR UM MENNTAMÁL
Virðing Gleði Sköpun

Þjóðfundur um menntamál 2010
Þjóðfundur um menntamál 2010 verður haldinn laugardaginn 13. febrúar kl. 9:30-15:30. Fundurinn er í beinu framhaldi af Þjóðfundi 2009 og byggir á hugmyndafræði hans. Á þjóðfundi um menntamál er ætlunin að stíga markviss skref í átt að mótun stefnu þjóðarinnar í málum er varða menntun íslenskra barna og ungmenna að 16 ára aldri. Í stuttu máli verður viðfangsefni fundarins þríþætt: • að fá fram gildi sem liggja ættu til grundvallar menntunar á leik- og grunnskólastigi • að skilgreina helstu markmið menntastarfsins • að gera tillögur um aðgerðir (breytingar, verkefni, ákvarðanir)
Samfélagið í nærmynd þann 11. febrúar um þjóðfund um menntamál
Fyrirkomulagið verður svipað og á þjóðfundi 2009 en áhersla lögð á að komast lengra í að marka þær leiðir sem hægt er að fara að settum markmiðum.
Tillögum um aðgerðir verður komið til þeirra sem geta hrint þeim í framkvæmd! Meginniðurstöður verða einnig kynntar á menntaþingi föstudaginn 5. mars. Þátttakendur verða tæplega 300, helmingur þeirra eru "eingöngu" foreldrar og hinn helmingurinn fagmenn úr ýmsum áttum, sem reyndar eru margir einnig foreldrar. Vinnulag er skipulagt þannig að allir þátttakendur taka mjög virkan þátt í vinnunni. Allir koma á fundinn sem einstaklingar en ekki sem fulltrúar einstakra stofnana eða hagsmunaaðila.
Undirbúningshópinn skipa
Hekla Arnardóttir, heklaa@gmail.com, s. 664 1075
Jón Ágúst Guðjónsson
Jónína Lárusdóttir
Kristín Dýrfjörð, dyr@unak.is, s. 897 4246
María Jónasdóttir
Rut Magnúsdóttir, rutmag@gmail.com, s. 821 6937
Sigrún Þorgeirsdóttir
Snjólfur Ólafsson, snjolfur@hi.is, s. 692 3232
Þorgils Völundarson
Kynnar og fundarstjórar eru
Guðfinna Bjarnadóttir
Ingrid Kuhlman
Opnað hefur verið fyrir netskráningu á fundinn! Þeir sem standa að þjóðfundi um menntamál hafa mikinn áhuga á því að fá fjölbreyttan hóp af áhugasömu fólki á fundinn. Áhugasamir geta skráð sig í pott sem síðan verður valið úr til að tryggja að hópurinn verði sem fjölbreyttastur.
Þjóðfundur á facebook